Spurt og svarað
Allt sem þú þarft að vita um verð og þjónustu hjá
MEÐ ALLT Á HREINU
Algengar spurningar
Hvernig virkar verðskráin hjá ykkur?
Við rukkum einfalt tímagjald 10.000 kr á klukkustund og lágmarksbókun eru 2 klst ( 20.000 kr )
Heimilisþrif, gluggaþvottur, háþrýstiþvottur og sorpþrif eru öll í tímavinnu á þessu gjaldi.
Ef þarf lyftu eða sérstakan búnað bætist við leiga búnaðarins.
Fyrirtæki og húsfélög fá tilboð út frá umfangi og tíðni þrifa, svo þú veist alltaf fyrirfram hvað þjónustan kostar - engin leynileg gjöld.
Afhverju rukkið þið alltaf 2 klst, jafnvel þó verkið sé minna?
Þegar við mætum í verk fer töluverður tími í undirbúning, akstur, bílastæði, að taka saman og ganga frá búnaði.
Til að þjónustan sé sanngjörn og hagkvæm bæði fyrir þig og okkur er lágmarksbókun því 2 klst ( 20.000 kr ).
Ef verkið tekur lengri tíma en það, er bara bætt við tímagjaldi 10.000kr/klst eftir fyrstu 2 klst.
Er verðskráin föst eða metið eftir aðstæðum? Get ég fengið tilboð þó ég sé ekki fyrirtæki eða húsfélag?
Tímagjald okkar er fast: 10.000kr á klukkustund og lágmarksbókun eru 2 klst ( 20.000kr ) lágmark fyrir hvert útkall.
Fyrir venjuleg heimilisþrif rukkum við samkvæmt verðskránni, en ef um stærra eða sértækara verk er að ræða (t.d. stórþrif fluttningsþrif, árlegan gluggaþvott o.fl.) getur þú alveg fengið tilboð þó þú sért ekki fyrirtæki eða húsfélag
Við komum með öll hreinsiefni og tuskur. Það er hins vegar mjög algengt að við notum:
ryksugu hjá þér,
gólfmoppu/skaft ef til staðar.
Ef þú vilt að við komum með allt (t.d. ryksugu og moppu), getum við leyst það – segðu okkur bara frá því þegar þú pantar.
Bjóðið þið regluleg þrif eða bara stök verk?
Við gerum bæði:
stök heimilisþrif (t.d. vorþrif / stórþrif),
regluleg þrif (vikulega, á tveggja vikna fresti o.s.frv.).
Regluleg þrif gera verðið fyrirsjáanlegra og halda heimilinu stöðugt hreinu.
Þarf ég að vera heima á meðan er verið að þrífa?
Nei, það er ekki nauðsynlegt.
Flestir viðskiptavinir:
hitta okkur í fyrsta skipti,
útskýra hvað á að gera og hvernig lyklar virka,
og síðan sjáum við um rest.
Við getum líka unnið á meðan þú ert í vinnunni – bara svo lengi sem aðgengi er tryggt.
Komið þið með hreinsiefni og áhöld eða þarf ég að eiga eitthvað sjálf/ur?
Get ég pantað fleiri en eina þjónustu í einu?
Hvað ef ég er ekki sátt/ur með þrifin?
Já, auðvitað. Þú getur pantað fleiri þjónustu í einu, t.d. heimilisþrif og gluggaþvott í sömu ferð.
Við förum þá yfir hvað á að gera, áætlum heildartímann og látum þig vita hvað verkið líklega tekur margar klukkustundir.
Lágmarksbókun eru samt 2 klst fyrir hvert útkall, en það er oft hagkvæmt að sameina nokkur verk í einni heimsókn.
Við stöndum við nafnið „Með allt á hreinu“.
Ef eitthvað er ekki í lagi:
láttu okkur vita innan sólarhrings,
við komum til baka og leiðréttum það sem upp á vantar eftir samkomulagi.
Markmiðið er að þú getir treyst því að við skilum án ummerkja – líka í þjónustunni.
Hvaða svæði þjónustið þið?
Hvernig panta ég?
Við þjónustum aðallega:
Höfuðborgarsvæðið
Suðurnes
Ef þú býrð aðeins fyrir utan þetta svæði, má alltaf senda okkur fyrirspurn – við finnum lausn ef hægt er.
Þú getur:
fyllt út fyrirspurnarform á síðunni,
sent okkur tölvupóst á tilbod@medalltahreinu.is
eða hringt í 583 6780
Segðu í stuttu máli:
hvað þú vilt láta þrífa,
hvenær hentar best,
og við svörum með tíma og áætlun.
Staðsetning
Við þjónustum höfuðborgarsvæðið og suðurnes með sveigjanlegum tíma og persónulegri nálgun.
Hafðu samband
Netfang:
info@medalltahreinu.is
Opnunartími:
Mán - Föst 08:00 - 18:00
Laugardaga 10:00 - 18:00
Sunnudaga 10:00 - 16:00
Símanúmer:
583 6780
